23.11.2008 | 16:45
Valda fíklar.
Mér brá verulega við skilaboð Ingibjargar Sólrúnar til þjóðarinnar nú fyrir tveimur dögum. Það er mér nú ljóst að engin að þeim sem nú eru við stjórn eru hæfir til að sitja þar áfram. Á það einnig við um aðra flokka og menn á Alþingi. Þeir eru allir fastir í sama fari og ef einhver þarf að fara í meðferð eru það stjórnmálamennirnir. Dæmigerður fíkill sér ekkert að hjá sér.
Nú róa þeir og róa upp straumharða á, með brotnar árar og á lekum bátum, dæmdir til að fljóta að feigðarósi. Í ofanálag boðar sendisveinn komu Davíðs, að hjálpa til við róðurinn. Hvílík örvinglun og firring.
Ég hugsa til þess með hryllingi hvað muni gerast á næstu mótmælafundum.
Ég hafði trú á að Samfylkingin væri undir niðri með rétta stefnu en Sjálfstæðisflokkur drægi hana af leið. Svo virðist því miður ekki vera.
22.11.2008 | 15:19
Ofbeldismennirnir með í sjúkrabílnum.
Það hefur verið gert mikið grín að Bush forseta Bandaríkjanna vegna setninga og óheppilegs orðavals. Ingibjörg Sólrún er á leið að ná árangri af sama sviði. Það er þó verra að hún er ekki að bulla tóma vitleysu heldur segir frá af sannfæringu.
Fólkið í landinu hrópar á breytingar, kosningar, aðgerðir sem duga, af mikilli kurteisi og tillitsemi.
"það væri mikilvægara en nokkru sinni fyrr að stjórnmálaöflin í landinu setji eigin hagsmuni til hliðar" segir Ingibjörg Sólrún samkvæmt Vísi.is, 22. nóv. 2008 13:16
Já stjórnmálaöflin leggi hagsmuni sína til hliðar og fari að hugsa um fólkið. Mjög athyglisvert.
Skoðanakannanir sýna að fólk vill breytingar núna. ´Nei segir Ingibjörg fólkið kemur fyrst. Hvaða fólk og hver er það sem ákveður það? Það skildi þó ekki vera flokkurinn?
Aftur á móti væri ekki hægt að láta það stjórna afstöðu flokksins til kosninga og kosningar í vor væru ekki tímabærar. Í hennar huga sé forgangsröðin skýr. ,,Fyrst kemur fólkið og svo flokkurinn."
Hvaða fólk?
Hvað kemur það sem yfir okkur hefur verið látið ganga flokknum eða flokkunum við? Nema að þeir voru valdir af verkunum. Sendum við mann sem barið hefur annan mann með honum í sjúkrabílnum og svo inn á spítala og skurðstofu?.
Það er greinilegt að Ingibjörg er ekki með réttar áttir. Maður hélt að stjórnarflokkarnir væru ekki af sama toga spunnir. Vegna Samfylkingar hafa mótmæli hingað til verið friðsæl en ekki fyrir Samfylkinguna. Með svona orðavali er verið að kasta sprengjum og ef þær springa þá springa þær í andlitið á Samfylkingunni.
15.11.2008 | 22:57
Hættuleg staða.
Ég skrifaði blogg fyrir rúmum mánuði síðan eða 19.10. (Bylting) og taldi þar upp mögulegar afleiðingar sem geta komið á eftir skell eins og við Íslendingar höfum fengið. Söguþráður raunveruleikans nú er að mörgu líkur því sem ég lýsti þar. Stigmögnum mótmæla breytist í aðkast að húsum og mönnum og síðan í óeirðir og jafnvel í versta falli byltingu.
Það þarf afskaplega lítið til að viðkvæm staða þjóðfélagsins breytist hratt.
Íslendingar eru sein þreyttir til mótmæla sennilega vegna þess að við "vitum" að stjórnmálamenn sitja sem fastast og við fáum litlu breytt. Það er reynslan. Svo er líka svo ári kalt til mótmæla á Íslandi. Hins vegar þegar við reiðumst alvarlega er ekkert grín á ferðinni.
Nú er stjórnvöldum mikill vandi á höndum. Eitt atriði á borð við KB launaafskriftirnar er nóg til að sjóði upp úr.
Þó flestir álíti að við séum að læra af mistökum og munum gera flest betur í framtíðinni, þá er veruleg hætta líka á að ráðamenn fari nú að seilast eftir völdum í alla vasa. Komnir með fingurna á flesta þætti þjóðfélagsins. Má þar nefna ósk Ágústs Ólafar um upplýsingar um lánaveitingar banka til einstaklinga. Fyrir tveimur mánuðum hefði Ágústi Ólafi ekki dottið i hug að spyrja frekar en að spyrja Önd á tjörninni um slíkar upplýsingar. Hættan er augljós. Bretar settu lög um hryðjuverkastarfsemi fyrir sex árum, sóru og sárt við lögðu að ekki yrðu misnotuð, en notuðu nú til að knésetja banka.
Fyrir stuttu voru menn sem töluðu um ónýta krónu "fyrirlitlegir og höfð á þeim mesta skömm" "galgopar". Þarna fóru menn sem beittu (andlegu) ofbeldi til að halda umræðu um krónu og EES frá þjóðinni og stærsta stjórnmálaflokk landsins (sennilega fyrrverandi). Þeim verður ekki kápan úr því klæðinu en hver er tilkostnaðurinn.
Almenningur verður að standa sterkan vörð um að skrefin sem tekin eru nú verði ekki fleiri afturábak. Reiðin kraumar enn undir.
29.10.2008 | 00:59
Hlýnaði um hjartarætur.
Þegar ég heyrði í fréttum í dag að Færeyingar ætluðu að veita okkur 300m kr.danskar í lán, þá hlýnaði mér um hjartarætur. það fór um mig ákveðin tilfinning sem ekki er hægt að lýsa. Sennilega væri alveg sama hvaða þjóð hefði veitt okkur margfalt hærra lán hefði það ekki haft dýpri áhrif.
Þessi litla þjóð hefur vaxið í gegnum árin og í mínum huga er nú eins og bróðir minn eða systir.
Engin þjóð er mér kærari.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.10.2008 | 17:03
Kokkarnir okkar.
Stjórnarherrar og dömur hafa eldað ofan í okkur rétti sem eru svo naglasúpur þegar upp er staðið. Þeir hafa haldið leyndu fyrir þjóðinni að þeir sjálfir hafi verið í þeirri stöðu að geta bjargað Íslandi frá mestu eitrun síðan ég veit ekki hvenær.
Á meðan hafa þeir hafa haldið því fram að þeir séu stjörnukokkar en útrásin sökudólgur.
Smjattað hefur verið lengi og vel á öllum upplýsingum um ágæti aðgerða þeirra en sumu sleppt.
Yfirtaka Glitnis var fádæma framreiðsla með gómsætu sjónvarpviðtali við seðlabankastjóra í eftirrétt.
Nú koma upplýsingar um að Landsbankinn sé að koma með nýjan og safaríkan rétt.
Þetta eru kræsingar fyrir púkann sem fitnar sem aldrei fyrr á fjósbitanum.
Kokkar landsins eru meistarar í afbökun. Nú er betra að skipta um kokka þó þeir sé í miðjum "dinner".
Við getum ekki látið þá bera meira fram á okkar borð.
Verði landsmönnum að góðu.
27.10.2008 | 00:06
Er verið að gera okkur að.......?
26.10.2008 | 22:38
„Guð hjálpi bönkunum“
Þetta var ritað á heimasíðu Valgerðar Sverrisdóttur 27. oktober 2007 eða fyrir nákvæmlega einu ári síðan í dag. Með fyrirsögninni.
Hann er ekki banginn, viðskiptaráðherrann.
Í miðri grein er þetta ritað
„Guð hjálpi bönkunum“
"Ég hef einnig tekið eftir því að viðskiptaráðherrann talar alveg í þveröfuga átt nú um viðskiptabankana en áður tíðkaðist hjá Samfylkingunni þegar hún var í stjórnarandstöðu. Hann keppist við að hæla bönkunum og segir þá glæsileg útrásarfyrirtæki. Þetta er á allt annan veg en fyrir nokkrum mánuðum síðan þegar Össur sagði: „Guð hjálpi bönkunum“, og hafði uppi opinberar hótanir um stríð gegn þeim kæmist hann og flokkur hans til valda. Þessi orð gilda sennilega ekki lengur frekar en mörg önnur sem Samfylkingin hafði uppi fyrir kosningar enda gleðst Björgvin alveg sérstaklega yfir því að bankarnir skuli vilja skrá hlutafé sitt í evrum. Það kom mér ekki á óvart. Það var hins vegar athyglisverðara að forsætisráðherra og fjármálaráðherra ákváðu að láta sem ekkert hefði í skorist."
26.10.2008 | 21:58
Hvílíkt klúður.
Það er ekki að undra að Geir Haarde hafi ekki viljað að Davíð hætti. Það er einfaldlega vegna þess að líkurnar á að sannleikurinn komi í ljós eru meiri ef aðrir hefðu tekið við stjórn Seðlabankans og hann vissi líka að fleiri áttu þátt í þessu ótrúlega klúðri.
Fjármálaráðherra, forsætisráðherra, viðskiptaráðherra og seðlabankastjórn eru allir í djúpum.......sérstaklega seðlabankastjórn.
Ef rétt er, það sem kemur fram í Kompás á morgun er klúðrið stjórnarinnar frá upphafi til enda.
Að skella skuldinni á útrásina er aumkunarvert. Bankarnir eiga jú þátt en aðeins smá þátt í miðjum kafla.
Sjáið Kompás á morgun.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.10.2008 | 17:39
Nýja hugsun!
Átti að skipta um hest áður en lagt var í ánna? Á að skipta um hest í miðri á? Á að skipa um hest þegar komið er yfir ánna? Hvenær er komið yfir ánna? Hvenær var lagt að stað í ánna?
Sagt er að það þurfi 100 bloggara til að skipta um ljósaperu. Einn til að skipta um peruna og 99 til að blogga um hvernig verkið hefði átt að vera unnið öðruvísi.
Á meðan heldur allt áfram eins og áður.
Skoðanakönnun frá því í gær segir meira en 99 bloggarar og allir stjóramalaflokkar til samans. Það er að koma betur og betur í ljós að Stjórnvöld bera mesta ábyrgð. Ef þessir flokkar fá yfir 50% fylgi í næstu kosningum samanlagt þá er það afrek. Ekki er að sjá að stofnun nýrra flokka leysi nein mál.
Annað hvort kemur fram á sjónarsviðið ný stefna og ný hugsum hjá núverandi stjórnvöldum.
Eða að Íslendingar verða hugsanlega innanvið 150,000 eftir næstu kosningar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.10.2008 | 22:18
Ný von!
Nú þegar kurl fjármálavanda Íslendinga eru að koma til grafar er að verða ljóst hver og hvers vandinn er.
Fólkið í landinu kallar eftir ábyrgð. Að þeir sem beri ábyrgð axli hana. Stjórnvöld og þá sérstaklega Sjálfstæðismenn virðast ætla að heykjast við, fara undan í flæmingi eða drepa málið í dróma. Þau ráð hafa dugað hingað til í flestum tilvikum með einstaka undantekningu þó.
Tíminn líður og við erum fljót að fyrirgefa og gleyma. það er betra en að vera sífellt í hefndarhug.
Seðlabankastjórn hefur hvað mest verið gagnrýnd. Stjórnvöld landsins og þau öll bera mesta ábyrgð. Þau sköpuðu leikreglur sem atvinnulífið spilaði eftir. Bankamenn koma þar á eftir með því að tefla tæft með ábyrgðir þjóðarinnar. Að öðru leiti er ekki að sjá annað en að atvinnulífið hafi gert meira og mynna það sem því var boðið uppá.
Ætli stjórnvöld að komast hjá ábyrg og komast jafnframt hjá því að flokkar þeirra, sem mesta ábyrgð bera þurrkist ekki út í næstu kosningum. Þá verða stjórnvöld að grípa til þeirra aðgerða sem vekur upp von landsmanna og trú á framtíðinni. Það er betra að skapa nýja sókn en að draga menn upp úr tjöru og fiðri næstu misseri. Eyðum ekki orku og trú í frekari fórnir.
Stjórnvöld verða nú að hefja nýja sókn. Þær aðgerðir geta ekki verið neinar smálækningar. þar sem deilt er um laun bankastjóra og hvort fleiri konur eigi að vera hér eða þar. Það verður að taka á málunum með þeim hætti að ungt fólk sjái hér nýja framtíð. Nýja sýn, nýtt land. Stjórnvöld verða að meta hvort það verður með umsókn um aðild að EES, Þjóðnýta kvótann, neita að greiða Bretum alfarið allar skuldir og fara í málsókn, afnema verðtryggingu eða annað og meira, álíka stórtækt.
Nú dugir ekkert minna og annað en að stjórnvöld færi þjóðinni nýja von.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.10.2008 kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Einar G Harðarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Ólöf Anna Bloggar um heilsu, heilbrigði og útivist.
- LR Heilsa og Fegurð
- Námskið í netvðskiptum Lærdómur í að afla tekna á netinu.
Bloggvinir
-
agustolason
-
baldurkr
-
berglist
-
gudmundsson
-
eirikus
-
huld
-
friggi
-
killjoker
-
eddabjo
-
gudbjorng
-
gudbjornj
-
gudjonbergmann
-
gudruntora
-
zeriaph
-
gbo
-
hallurmagg
-
harring
-
helgadora
-
helgasigrun
-
heringi
-
hildurhelgas
-
holmdish
-
jensgud
-
jonaa
-
ljonas
-
jonmagnusson
-
kolbrunb
-
klerkur
-
larahanna
-
ofansveitamadur
-
omarragnarsson
-
pallieliss
-
golf
-
logos
-
forvitin
-
seth
-
sighauk
-
sivvaeysteinsa
-
steinnhaf
-
svanurg
-
sveinni
-
saemi7
-
teiturgu
-
postdoc
-
vga
-
sailor
-
tolliagustar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 3297
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar






